Þjófnaður frá þjóðskáldi

Um daginn birti ég stutta tilvitnun í sérviskulega bók eftir Eyrbekkinginn Guðmund Haraldsson. Þar fer höfundur frjálslega um garða þegar hann eignar sér vísuna alkunnu:

Karlmanna þrá er vitum vér,
vefja svanna í fangi;
kvenmanns þráin einkum er,
að hana til þess langi.

Þó svo að vísan hafi virkað kunnuglega á mig þá kveikti ég ekki á að þarna er á ferðinni allbíræfinn þjófnaður. Það var enginn annar en þjóðskáldið Hannes Hafstein sem orti og árvökul augu lesenda kveiktu á þessu sem hér með er þakkað fyrir. Það er eiginlega ekki hægt annað en að dást að Guðmundi heitnum fyrir að reyna...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svona hefði Hannes auðvitað aldrei gengið frá neinni vísu, enda er vísan svona:

Karlmanns þrá er vitum vér,

vefja svanna í fangi;

kvenmanns þráin einkum er,

að hann til þess langi.

Ég man ekki eftir að hafa séð neitt af ljóðagerð Guðmundar (bankafulltrúa) en var það ekki Leifur bróðir hans sem orti vísuna um ungu skáldin sem ortu án þess að geta það og sjálfan sig sem var í fæði á Ingólfskaffi, an þess að éta það?

Árni Gunnarsson, 13.1.2010 kl. 17:02

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er þetta ekki sá Guðmundur, sem var jah...smávaxinn og nokkuð grumpy karakter á götum borgarinnar hér fyrir mörgum árum?  Setti svip sinn á bæinn, oftast prúðbúinn og auðnuleysingi annars vegna fötlunar sinnar?

Ef svo er þá man ég vel eftir honum og hann var jú tíður gestur hjá Braga í bókavörðunni á meðan ég sveimaði þar og Bragi gaukaði að honum eins og hann er þekktur af við þá sem undir hafa orðið í lífinu.  Í staðinn skrifaði Guðmundur lofkvæði um góðgerðarmenn sína og man ég sérstaklega eftir vísu um ketkaumann, sem Guðmundur kallaði Rausnarlegan öðling sem stóð keikur mjög bak við kötborðið kötverslunarinnar...etc.

Ef þetta er sami maður, þá sé ég ekki mikla sanngirni í að núa honum þessu um nasir, er það?

Jón Steinar Ragnarsson, 13.1.2010 kl. 17:11

3 Smámynd: Bjarni Harðarson

Auðvitað, það var eitthvað vitlaust við þetta. Takk fyrir þetta.

Bjarni Harðarson, 13.1.2010 kl. 18:58

4 identicon

Guðmundur Haraldsson,var mikill vinur föður míns,og seinna meir fóru þeir og fleiri, frægan túr á Gullfossi.Guðmundur gaf út bók um þessa ferð,og var hún hin skrautlegasta.Það má með sanni segja að hann var allsérstakur karakter.

Númi (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 20:58

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þegar meiztari Áddni, mælir um kveðzkap, er vízazt að drjúpa höfði & þakka innilega fyrir leiðréttínguna...

Steingrímur Helgason, 13.1.2010 kl. 23:27

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Maðurinn sem Ísland þarf á að halda - fundinn. Alþjóðlegur sérfræðingur í skuldaskilum ríkja, tjáir sig um vanda Íslands, og er harðorður!

Ég er að tala um frábæra grein, Prófessors Sweder van Wijnbergen, við háskólann við Amsterdam, í NRC Handelsblad. Sá maður er einmitt, sérfræðingur í skuldaskilum ríkja. "Sweder van Wijnbergen - worked for 13 years at the World Bank, and was lead economist for Mexico and Central America during the negotiations on Mexican debt."

Svo þessi maður, veit allt sem vita þarf, um afleiðingar skuldakreppu! Hann þekkir þessi mál út og inn, fyrst hann var starfandi hjá Heimsbankanum, einmitt á þeim árum, er mörg lönd í 3. heiminum, gengu í gegnum fræga skuldakreppu

Sjá greinIceland needs international debt management

Þetta er að mínum dómi, merkilegasti einstaklingurinn sem tjáð sig hefur opinberlega um málið, og fullyrðing hans "A debt of three or four times GDP cannot be repaid, and therefore will not be repaid" - skal skoðast sem hreinn sannleikur máls, fyrst það kemur frá honum.

Prófill Sweder van Wijnbergen

Fáum þennann mann til landsins!!!

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 14.1.2010 kl. 12:05

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta minnir mig á þrætu um það hver hafi gert snilldarvísuna um Glerá á Akureyri, sem var mjög menguð af málningu og öðrum efnum sem komu frá verksmiðjum SÍS.

En vísna er svona:

Hver er þessi eina á,

sem aldri frýs, -

gul og rauð og græn og blá

og gjörð af SÍS ?

Ómar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 15:03

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Afsakið innsláttarvillu: "...sem aldrei frýs, -..."

Ómar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og þremur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband